| Blogg | Myndaalbúm | Gestabók | Um mig | Linkar |
Blogg
Helgarferð til Rómar
Haustmerki
Álandseyjar
Bílað til Danmerkur
Fjölskylduheimsókn
Júní 2007
Vorið er komið
Árshátíð Íslendingafélagsins
Nýtt ár...
Lífið eftir Möltu
Malta
Heimsókn
Stokkhólmari
Sumarskýrslan
Finnland
Sumar og sól
Alanya
Sumarfrí
Eins konar útskrift
Valborg


Ég, nýja hjólið mitt og vinnan mín
Haustmerki2007-08-19, 19:25
Í mínum huga hefur það alltaf verið merki um komu haustins þegar skólinn byrjar. Hérna í Stokkhólmi eru skilin þó ekki alveg jafn skýr. Hitastigið er að vísu farið að síga niður fyrir 20 gráðurnar á stundum og fríið er vissulega búið þetta árið. Ég byrjaði að vinna í síðustu viku og á morgun tek ég á móti litlu elskunum mínum á skólasetningunni. Síðsumardagarnir og -kvöldin (og sérstaklega helgarnar) eru þó ekkert af verri endanum. Svalirnar á nýju íbúðinni okkar eru að gera það gott, gönguferðir á bryggjunni í nærveru litlu (núna stóru) bleshænuunganna eru alveg yndislegar og í gær fjárfesti ég (loksins) í nýju hjóli. Það gamla sem ég fékk gefins í Luleå gaf upp andann í flutningunum í júní svo ég hef ekkert getað hjólað í sumar. Núna hins vegar þegar það er svona stutt í vinnuna fannst mér ekki annað hægt en að fjárfesta í þessu líka fína hjóli og í tilefni af því prufuhjóluðum við John í vinnuna mína í dag. Það tók ekki nema eitthvað korter og því er ekkert því til fyrirstöðu að ég nýti hvert tækifæri sem gefst til að nota nýja farkostinn. Það var þó ekki allt sem við höfðum fyrir stafni þennan sunnudaginn því ég fékk líka að prófa golf í fyrsta skipti. Tæknin var ekkert alveg á sínum stað en ég náði að slá nokkur 70 metra högg sem mér fannst bara alveg nógu gott. John var hins vegar hinn snaróðasti að æfa sig fyrir spil með vinnufélögunum annað kvöld en fékk að launum þessi lika hrikalegu sár á hina ýmsu fingur. Nú er bara að vona að hann geti spilað á morgun :)

Komment: 
Nafn:    E-mail/url: 
Endurtaka:  =  
Soffía @ :  Hæ hæ ertu alveg hætt að blogga hérna!! Hvað er annars títt af þér??
 Margrét: Bloggheimurinn virðist allur vera að lognast út af. Mitt blogg er álíka mikið lifandi og allra annarra sem ég þekki. Annars er bara brjálað að gera. Sendu mér endilega meil og ég reyni að svara :)
07-09-25