|
 |
 Álandseyjar - Hérna er hægt að sjá ferðalagið okkar í heild sinni. | Álandseyjar2007-08-12, 19:22 Í lok júlí tókum við svo enn einn bátinn en í þetta skiptið lá leið okkar til Álandseyja þar sem við hjóluðum í skerjagarðinum í fjóra daga. Ég mæli eindregið með þessari tegund ferðalags en munið bara að baða ykkur í mýflugnafælu áður en þið haldið af stað. Ég rakst á hóp morðóðra mýflugna sem bitu mig í bak og fyrir. Ég vil benda á að þetta var um miðjan dag þegar sólin var hátt á lofti. Ég gat talið a.m.k. 30 bit á fótleggjum og lærum sem ég fékk á 5 mínútum í gegnum leggings. Daginn eftir leit ég út eins og fílamaðurinn þar sem ég er alveg hrikalega viðkvæm fyrir öllum skordýrum, stuð!
Á heildina litið hjóluðum við rúmlega 100 km, rúmlega 20 km á dag nema síðasta daginn en þá hjóluðum við einhverja tæpa 40 km. Fyrstu nóttina gistum við á Degerby mat & café á Föglö, þá aðra á Länsmans Värdshus á Kumlinge og þá síðustu í bústað hjá Prästö stugor. Við pöntuðum ferðina hjá Viking Line sem sáu um allar bókanir fyrir okkur: bátinn til og frá Stokkhólmi, hjólin, skerjagarðsferjurnar og gistingu á öllum þremur stöðum. Alveg ótrúlega skemmtileg ferð!
| 














|