|
 |
 Við tókum bátinn frá Helsingborg til Helsingör | Bílað til Danmerkur2007-08-12, 18:53 Það er kannski tími til kominn að skrifa nokkrar línur um það sem á daga mína hefur drifið í sumarfríinu núna þegar ég er á leið i vinnuna í fyrramálið. Ég ætla nú ekki að hafa of mörg orð um þetta allt saman, reyni að setja saman smá myndasögu í staðinn... eða eitthvað! Ég hef annars haft það alveg rosalega gott, Skandinavíurigningin hefur ekki náð mér svo marga daga þannig að ég hef ekkert að kvarta yfir. Ég er nú ekkert brúnari en venjulega, en í því sambandi skiptir nú ekki miklu máli í hvaða heimshorni ég er. En alla vega, ein af leiðum okkar John í sumar lá til Danmerkur í örfáa daga þar sem við nutum alls þess sem Kaupmannahöfn hefur upp á að bjóða. Sökum leti eyddum við stórum hluta ferðarinnar í hinum ýmsu bátum. Það má eiginlega segja að þema sumarsins hefi verið bátar, eyjur og brýr sem er hið allra besta mál. Við skruppum að sjálfsögðu til Malmö á leiðinni heim þar sem ég fékk mér mjög svo langþráðan kebab á Chaplin Grill áður en við héldum áleiðis til Kalmar þar sem við gistum á þessu líka fína hóteli áður en við brunuðum heim til Stokkhólms á undan rigningunni að sjálfsögðu :)
| 










|