| Blogg | Myndaalbúm | Gestabók | Um mig | Linkar |
Blogg
Helgarferð til Rómar
Haustmerki
Álandseyjar
Bílað til Danmerkur
Fjölskylduheimsókn
Júní 2007
Vorið er komið
Árshátíð Íslendingafélagsins
Nýtt ár...
Lífið eftir Möltu
Malta
Heimsókn
Stokkhólmari
Sumarskýrslan
Finnland
Sumar og sól
Alanya
Sumarfrí
Eins konar útskrift
Valborg


Vaktaskipti við höllina
Fjölskylduheimsókn2007-07-09, 16:59
Þá er fyrsta alvöru sumarfrísvikan liðin. Jóhanna systir og fjölskylda komu í heimsókn og það var stíft prógram alla vikuna. Veðurspáin leit ekki svo vel út og vildi spá rigningu alla vikuna en sem betur fer vildu veðurguðarnir ekkert fylgja þeirri spá og sólin skein glatt nánast alla dagana. Helstu viðkomustaðir voru m.a. Skansen dýragarður með meiru, tívolíið Gröna Lund, ströndin við Flatenbadet og konungshöllin í gamla bænum ásamt ófáum göngutúrum um hina ýmsu hluta bæjarins. Vikan og allt sem hún fól í sér heppnaðist vonum framar og ég vona að gestirnir séu sammála því. Núna erum við John hins vegar komin í rólegheitin í sveitinni í Dacke og ætlum að eyða allri vikunni þar. Hvað tekur við í næstu viku kemur í ljós síðar. Við erum sem sagt voðalega afslöppuð í þessu öllu saman :)

Komment: 
Nafn:    E-mail/url: 
Endurtaka:  =