|
 |
 Bleshænuungar í Hammarby Sjöstad | Júní 20072007-06-30, 16:59 Ehh.. Gleðilegt sumar!?! Það eru þúsund ár síðan ég skrifaði eitthvað hérna síðast. Þá var vorið komið og nú er þriðjungur af sumrinu liðinn. Júní er sem sagt búinn að vera viðburðarríkur mánuður og liðið ósköp hratt. Við byrjuðum á því að flytja í fína bryggjuhverfið í Hammarby Sjöstad þar sem okkur líkar alveg ótrúlega vel. Síðan fórum við í siglingu til Helsinki með Önnu og Peer, en þessa örfáu tíma sem við vorum þar virðist ég bara hafa tekið myndir af kirkjum en það var ekki beinlínis ætlunin. Síðan komst ég loksins í sumarfrí fyrir tveimur vikum og hef haft það rosalega fínt í nýju íbúðinni. Ég er t.d. búin að fylla frystinn af heimabökuðum kanelsnúðum, gulrótaköku og smjörkökum og svo er ég búin að kynna mér nýja hverfið hátt og lágt, fara í klippingu og til tannlæknis. Jónsmessuhelginni eyddum við svo á Gotlandi, sem er eyja hérna við austurströnd Svíþjóðar, þar sem við fengum lánaðan sumarbústað hjá vinnufélaga hans John. Veðrið hefði getað verið betra en við létum fara alveg ótrúlega vel um okkur og skoðuðum norðurhluta eyjunar hátt og lágt. Við skoðuðum dranga, strendur, hella og margt fleira. Þegar við komum heim kíktu Kolla og Andri svo í heimsókn með litla prinsinn sinn hann Jakob Tuma og við reyndum að hvetja þau til að kaupa íbúð í þessu fína hverfi okkar. Á morgun kemur svo Jóhanna systir með fjölskylduna sína i heimsókn og þau ætla að vera hjá okkur í viku. Ég vonast til að ég verði duglegri að skrifa og setja inn myndir eftir þá heimsókn. Núna er John líka kominn í sumarfrí og er ætlunin að njóta næstu fjögurra vikna till hins ítrasta með ferðalögum til Sundsvall, Álandseyja og Danmerkur.
| 














|