|
 |
 Judarn i vorskrúða | Vorið er komið2007-03-27, 12:37 Í dag eins og aðra þriðjudaga er ég í fríi á Ekliden. Ólíkt öðrum þriðjudögum þá fer ég ekki í vinnuna á morgun heldur og reyndar ekki fyrr en eftir rúmar tvær vikur. Á morgun er ég nefnilega á leiðinni til Íslands. Mamma og pabbi eru búin að selja húsið og ég verð að pakka niður draslinu mínu og reyna að ráðstafa því á einhverja gáfulega staði. Ég verð nú samt að segja að það er ekkert sérstaklega spennandi að fara í kuldann, rokið og rigninguna heima á Íslandi þegar vorið er loksins komið hingað til Stokkhólms. Núna er t.d. 15 stiga hiti og sól. Síðustu þriðjudaga hef ég fylgst með komu vorisins hingað í hólminn. Ég fer reglulega í gönguferðir kringum Judarn sem er lítið vatn hérna hinu megin við lestarstöðina. Fyrstu vikuna var ís og fljúgandi hálka, þá aðra óð ég leðjuna upp á hnjám en í dag syngja fuglarnir og endurnar sníkja brauð. Ég ætla ekkert að vera að eyða fleiri orðum um komu vorsins til Judarn því ég held að myndirnar segi örugglega meira en mörg þúsund orð.
| 






|