|
 |
 Sólarlag í Bugibba | Lífið eftir Möltu2006-11-12, 16:12 Eins og flestir vita þá kom ég heim frá Möltu fyrir rúmri viku. Ég hef þurft á allri þessari viku að halda til að koma mér í gang aftur. Vinnan beið ekki og kom okkur flestum á óvart á mánudaginn. Við vorum öll svo upptekin af Mötluferðinni að við gleymdum flest að við þyrftum að undirbúa kennsluna fyrir vikuna sem nú er liðin. Flestir voru því alltaf skrefinu á eftir alla vikuna. Núna er ég hins vegar búin að sofa alla helgina þannig að ég held ég sé til í tuskið fyrir komandi viku. Ekki að ég sé búin að undirbúa kennsluna en það kemur vonandi af sjálfu sér.
Annars var Möltuferðin nálægt því að vera snilld. Ég fékk að kynnast vinnufélögunum betur og þeir komu mér bara jákvætt á óvart. Hitinn var viðráðanlegur, kringum 20-25 gráður alla vikuna. Sólin var á sínum stað nánast alla daga en vinnan var alltaf að þvælast fyrir. Við fengum þó tveggja daga frí sem gerði það að verkum að nokkur okkar héldu næturlangt partý á svölunum mínum sem endaði með nætursundi og stórfurðulegum póker þar sem spilað var um tómar vínflöskur og snusdollor. Ég svaf þó af mér pókerinn, eitthvað sem var mér til mikillar gleði daginn eftir. Ég tók að sjálfsögðu fullt af myndum en því miður eru flestar þeirra þess eðlis að ég get ekki birt þær á heimasíðunni. Aðeins myndir án skemmtilegra vinnufélaga stóðust ritskoðun :o)
| 










|