|
 |
 Hótel Dolmen | Malta2006-10-25, 18:19 Já þá er komið að því! Á laugardaginn fer ég ásamt vinnufélögum mínum í vikuferð til Möltu í boði vinnuveitandans (eða eitthvað álíka). Að vísu verður vinnan í brennideplinum en nokkra frídaga fáum við. Vona bara að ég geti skilið óveðrið eftir í Stokkhólmi.
Annars veit ég að ég hef ekki verið neitt sérstaklega dugleg að uppfæra þessa blessuðu heimasíðu mína enda er líf mitt ekki mikið merkilegra en vinna, sofa og éta þessa dagana. Ég vil samt kenna kröfunni um þrjú tungumál um. Þess vegna er ég að spá í að byrja að blogga blogga aftur, þ.e.a.s. skrifa um allt og ekkert á einu tunugmáli. Bloggið getið þið fundið hér og mun ég stundum skrifa á íslensku og stundum á sænsku, allt eftir hentisemi. Heimasíðuna mun ég síðan nota þegar ég hef eitthvað gáfulegt að segja og fagrar myndir máli mínu til stuðnings. Njótið vel!
| | | Magga: Takk fyrir kveðjurnar. Ég hafði það rosalega gott á Möltu, set inn myndir í vikunni. | 06-11-07 | | bjarni: góða ferð :D well þú ert nú víst úti þannig njóttu vel :) | 06-10-30 | | agust.o @ : Kveðja úr vetrarbyrjun á Fróni | 06-10-28 | John : Haha! Hotell Dolmen... | 06-10-25 |
| | 
|