|
 |
 Höllin í Drottningarhólma | Heimsókn2006-09-26, 15:47 Ég veit ég er alveg ótrúlega sein en betra er seint en aldrei. Það var nefnilega þannig að fyrir nokkrum vikum fengum við John heimsókn hingað til Stokkhólms. Mamma og pabbi skruppu yfir hafið í viku (fimmtudag 7. sept - fimmtudag 14. sept) og Hrönn systir og Ivar maðurinn hennar rúlluðu yfir landamærin frá Noregi og stoppuðu í tvo daga (fimmtudag til laugardag). Haustið var ekkert að láta á sér kræla enda sól og yfir 20 stiga hiti nánast alla vikuna. Hrönn og Ivar voru þó ekki alveg jafn heppin og foreldrarnir en rigningin var eitthvað aðeins að tjá sig fyrstu tvo dagana. Föstudeginum var því eytt í Kista galleria, verslunarmiðstöð sem ég hafði aldrei áður komið í. Flestir kannast eflaust við vandamálið þegar fimm manneskjur með frekar ólíkan smekk fara saman að versla, það gerist ekkert hrikalega mikið á verslunarfrontinum. Ég verð því að leggja leið mína til Kista aftur við tækifæri :) Á föstudagskvöldið fórum við svo öll saman ásamt John út að borða á alveg frábæran ítalskan veitingastað sem heitir Capri. Ég fæ enn vatn í munninn við tilhugsunina. Það er ekki bara maturinn sem er æðislegur, stemmingin er ótrúleg og þjónustufólkið hjálpamt og vingjarnlegt.
Á laugardagsmorgun stungu Hrönn og Ivar af til baka til Noregs og við hin skelltum okkur í stutta heimsókn til Jóhönnu frænku og Gísla í Uppsölum. Þar beið okkar þetta líka fína veisluborð með öllu tilheyrandi. Þegar við vorum búin að borða okkur pakksödd og tala okkur mállaus héldum við á stað í skoðunarferð um Uppsali. Það var enginn leikur að komast um borgina þar sem þar var haldið upp á menningarnótt en við komumst þó nokkuð áleiðis og kíktum m.a. á dómkyrkjuna.
Á sunnudeginum var haldið í Vasasafnið og drukkið kaffi í gamla bænum í yndislegu veðri. Á mánudeginum þurfti ég að vinna aðeins svo við kíktum bara í IKEA eftir hádegi og keyptum ýmsar nauðsynjavörur fyrir nýju íbúðina eins og gardínur, borð undir örbylgjuofninn o.fl. Þriðjudagur er frídagurinn minn og var honum eytt í bænum þar sem kíkt var í búðir, borðaður ekta sænskur hamborgari á MAX og kíkt á höllina og alþingishúsið úr fjarlægð. Þess má geta að síðar sama dag átti einhver sjálfsmorðsóður geðsjúklingur með exi ferð um þetta svæði. Gott að við vorum snemma á ferð! En alla vega, á miðvikudeginum þurfti ég aftur að vinna smá en eftir hádegi rúlluðum við á volvonum út í Drottningarhólma og kíktum á heimkynni konungsfjölskyldunnar. Ég held svei mér þá að það hafi verið í miklu uppáhaldi hjá foreldrunum. Mamma og pabbi eyddu svo fimmtudeginum í hvíld og pökkun á meðan ég vann eins og geðsjúklingur. Það voru því þreyttir og ánægðir foreldrar sem við John skildum eftir á Arlanda flugvelli að kvöldi fimmtudagsins eftir ótrúlega vel heppnaða viku. Takk mamma og pabbi fyrir komuna og að sjálfsögðu þið Hrönn og Ivar líka (en þau kíkja náttúrulega aldrei á þessa blessuðu síðu mína)!
| | Soffía @ : Vildi bara kasta kveðju til ykkar.Við mamma settumst hérna að skoða síðuna.
Margrét: Gaman að sjá að einhver kíkir enn þá hingað inn :oþ | 06-10-10 |
| | 










|