| Blogg | Myndaalbúm | Gestabók | Um mig | Linkar |
Blogg
Helgarferð til Rómar
Haustmerki
Álandseyjar
Bílað til Danmerkur
Fjölskylduheimsókn
Júní 2007
Vorið er komið
Árshátíð Íslendingafélagsins
Nýtt ár...
Lífið eftir Möltu
Malta
Heimsókn
Stokkhólmari
Sumarskýrslan
Finnland
Sumar og sól
Alanya
Sumarfrí
Eins konar útskrift
Valborg


Per, Karin og seglbáturinn frægi
Stokkhólmari2006-09-05, 10:48
Eins og flestir vita er ég flutt til Stokkhólms. Fyrir rúmum þrem vikum rúlluðum við hingað suður á fína volvónum okkar. Við vorum ekki búin að fá íbúðina þannig að Karin systir hans John var svo góð að leyfa okkur að sofa á svefnsófanum sínum í nokkrar vikur. Lífið tók fljótlega stóran vaxtarkipp því ég byrjaði í nýju vinnunni minni strax daginn eftir. Fyrstu vikurnar voru mjög ruglandi þar sem skipulagið var mjög ábótavant. Engin stundatafla var tilbúin, ég fékk ekkert vinnupláss, þrátt fyrir fleiri en 10 nýja kennara þá var enginn sem gaf okkur góð ráð eða sýndi okkur hvernig hlutirnir virka og enn hef ég ekki fengið tölvu til að vinna á. En stundtaflan er alla vega tilbúin og ég er að rembast við að kenna þessum ótrúlega góðu nemendum. Náttúrufræðin gengur ekkert sérstaklega vel enda er ég ekki menntaður náttúrufræðikennari. Ég hélt að maður myndi kannski skipuleggja námið með kennurunum sem kenna hinum 7. bekkjunum en svo er því ekki háttað hér á bæ. Ég mátti velja bækur sjálf og ég fékk að velja algjörlega sjálf hvaða þætti í eðlis- efna- og lífffræðinni ég tæki þar sem nemendurnir hafa heil 3 ár til að komast í gegnum allt efnið. Þetta gerði lífið að sjálfsögðu svolítið erfiðara fyrir yngsta kennarann á svæðinu, þ.e.a.s. mig en ég lifi enn.

Annars reyndum við að njóta fyrstu viknanna til hins ýtrasta þegar ég var ekki að vinna. Við kíktum á Skansen, en eins og allir vita þá eru öll dýr í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég fékk t.d. að sjá elg í fyrsta skipti og leika við alveg yndislega kettlinga. Daginn eftir var aftur haldið til Djurgården en í þetta skiptið í Gröna Lund (tívolí). Þangað fórum við með Karin og vinkonu hennar Mariu og kepptum í fimmþraut. Þvílíkt gaman og við John unnum að sjálfsögðu. Í lokin ákváðu við að reyna að vinna svona stórt súkkulaðistykki og hver haldið þið að hafi unnið risa toblerone ef ekki bara undirrituð sjálf :) Heppninni virðist hafa verið dreift eitthvað aðeins vitlaust þar sem þetta var á sjálfan afmælisdag Karinar. En hún fékk þó fullt af toblerone í sárabætur (það voru sko 49 í pakkanum, ég taldi!). Með fimmþrautarmiðanum fengum við svo að fara í 2 valfrí tæki og við John fórum í Katapulten (uppskotið) og Vilda musen (lítill rússíbani) á meðan Karin og Maria fóru í Frítt fall og parísarhjólið. Ótrúlega ánægjulegur dagur þrátt fyrir nokkra regndropa. Þess má geta að það rigndi stanslaust fyrstu 2-3 vikurnar þannig að myndirnar eru teknar af einskærri heppni :)

Einn daginn var okkur svo boðið í siglingu á Mälaren í boði Per föðurbróður Johns sem er nágranni kóngsins (svona næstum því). Vegna óstöðugs veðurs var siglinginn stutt en einstaklega skemmtileg þar sem ég hef aldrei áður svo mikið sem setið í seglbáti. Karin var nýbúin að vera á námskeiði svo hún fékk að stýra nánast allan tímann og stóð sig eins og hetja. Þegar við komum til baka var Mona móðursystir hans John (kona Pers) að undirbúa ótrúlega fínan grillmat. Það voru því saddir og glaðir bátsfarar sem yfirgáfu Kaggeholm seint þetta laugardagskvöld. Fleiri hafa verið svo góðir að bjóða okkur í mat en við vorum einmitt boðin í grill hjá Kollu og Andra á miðvikudagskvöldið. Alltaf gaman að hitta Íslendinga en ég reikna með að ég muni gera mun meira af því hérna í Stokkhólmil.

Núna get ég hins vegar sagt að alvaran sé tekin við. Á föstudaginn fengum við nýju íbúðina í Åkeshov í Bromma og við erum því búin að eyða allri helginni í flutninga. Þrátt fyrir frekar gamla og þreytta íbúð erum við búin að gera hana alveg svakalega sæta. Ég vona að ég geti sett inn myndir fljótlega. John byrjaði svo að skrifa lokaverkefnið sitt í gær hjá margmiðlunarfyrirtæki hér í bær. Ég byrjaði líka í skólanum fyrir helgi og þar kem ég ekki til með að geta sleppt slöku við, það verður keyrt á fullu alla önnina, stuð! Annars er margt að hlakka til, mamma og pabbi eru að koma á fimmtudaginn og verða hjá okkur í viku. Ef einhverjir Stokkhólmarar hafa góðar hugmyndir hvað varðar sightseeing eða veitingastaði hér í borg þá mega þeir endilega láta heyra í sér. Hrönn systir í Noregi ætlar kannski að kíkja í vikunni líka en ég hef ekkert heyrt í nokkra daga. Innan skamms verður svo fjöldskyldumót hjá John og familíu í tilefni af því að liðið býr svona aðeins nær hvert öðru en undanfarin ár. Núna ætti ég kannski að fara að hætta þar sem einhverjir smiðir eru að fara að koma í heimsókn og taka myndir af loftræstikerfinu, vúhú! Ég reyni að vera duglegri að skrifa á komandi vikum!

Komment: 
Nafn:    E-mail/url: 
Endurtaka:  =  
Dagný :  Velkomin til Stokkhólms! Ég fer voðalega sjaldan út að borða en það er fullt af góðum stöðum. Mæli bara ekki með að borða á Södermalm, veit um þrjú matareitrunartilfelli eftir heimsóknir á veitingastaði þar. Foreldrar þínir hafa örugglega mjög gaman af að fara á Vasasafnið. Ég hef farið þangað tvisvar með gesti og mæli hiklaust með því. Mér fannst líka gaman að skoða Livrustkammaren í kjallaranum á höllinni í Gamla stan, kostar ekkert inn.
 Margrét: Takk takk :o) Við höfðum það gott með fjölskyldunni, fórum út að borða á Capri á Nybrogatan, svaka fínt. Fórum líka í Gamla stan og á Vasasafnið, allt mjög vel heppnað :oþ
06-09-13