|
 |
 Fallega Brändöskär | Sumarskýrslan2006-08-09, 22:36 Sumir hafa haft á orði við mig að ég hafi tekið mér langan tíma í að skrifa þessa færslu. Málið er einfaldlega það að aldrei þessu vant hef ég haft mikilvægari hluti að gera en að upplýsa vini og vandamenn um það sem á daga mína drífur. Því miður! Því mér finnst nefnilega alveg einstaklega skemmtilegt að röfla hérna fram og til baka. Í kvöld ákvað ég því að gefa mér tíma í að skrifa nokkrar línur. Ekki að þetta kvöld væri eitthvað betra en öll hin í sumar. Þvert á móti. Á morgun kemur nefnilega flutningabíllinn og sækir allt draslið okkar og ég get ekki beinlínis sagt að við séum búin að pakka öllu hafurtaskinu. Sem betur fer ætlar flutningaliðið að hjálpa til þannig að við höfum skilið eldhúsið eftir alveg sérstaklega handa þeim :) Síðustu nóttina Í Luleå eyðum við svo hjá þeim finnsku Önnu og Pekka og svo verður brunað suður á föstudag eftir vonandi vel heppnuð íbúðaskil kl. 13. Förinni verður heitið til Dacke þar sem við munum eyða helginni og svo tekur stóri Stokkhólmur við á sunnudag. Engan tíma má missa þar sem ég á svo að vera mætt í nýju vinnuna mína kl 8:10 á mánudagsmorgun.
Ég vildi því nota þetta tækifæri til að skrifa örstutta skýrslu um síðastliðinn mánuð. Eftir að hafa átt frábæra helgi í Finnlandi tóku við sviti og tár í vinnunni dag eftir dag eftir dag. Sem betur fer nýttum við helgarnar til hins ýtrasta sem gerði sumrið að einu því besta í manna minnum. Veðrið átti að sjálfsögðu stóran þátt í þeirri gleði en það hefur bara orðið betra og betra með hverri vikunni. Ég held að rigningardagarnir hefi ekki verið fleiri en 4-5 og alla aðra daga hefur sólin skinið sínu skærasta. Alveg svona akkurat öfugt við Reykjavík skilst mér! Einni helginni eyddum við í sumarbústað í Umeå þar sem 25 ára afmæli Gustafs var haldið hátíðlegt með tertum, grilli, gleðivökva, kubbi og næturdoppi í súperköldu hafinu. Eftir þá helgi stakk John af til foreldrahúsa í viku meðan ég þjáðist í vinnunni eins og venjulega. Síðan tóku við dagar með strandferðum og grilli, festivölum (flott fleirtala!) bæði í Piteå och Luleå (ég var einstaklega óvirk þetta árið enda tók út minn skammt í fyrra, áhugasamir geta séð myndir frá 2005), skoðunarferð í Storforsen (ótrúlega flottar flúðir/fossar) og bátsferð í skerjagarðinn. Ég kvarta sem sagt ekki. Okkur hefur virkilega tekist að kreista það síðasta úr Luleå áður en við höldum suður á bóginn. Hejdå Luleå!
| | Bjarni @ : jæja! nú er sko alveg kominn tími til að sýna myndir af nýja slottinu :D og segja frá raunum nýbúa í Stokkhólm ;)
Margrét: Á leiðinni! | 06-09-04 | Bjarni: hljómar eins og erfiðir dagar núna :S ekki stemming í svoleis :S
Margrét: Nei ekkert sérstaklega spennandi dagar. En í næstu viku fáum við íbúðina og svo 7. sept koma ma+pa i heimsókn svo það er nóg að hlakka til :o) | 06-08-24 | Bjarni: Hvernig gengur nýja vinnan? gengur ekki rosa vel, of ofboðslega mikið að gera eftilvill? Hvernig er Stokkhólm? ... já var Luleå bara að brenna til "grunna" nánast
Margrét: Úff margar spurningar! Eh, nei vinnan gengur ekki vel, veit ekki alveg hvernig ég á að leysa það vandamál :o( og jú það er alltof mikið að gera. Stokkhólmur er annars fínn, rignir mikið! Luleå er sem sagt aðeins "heitari" og komst nálægt því að brenna í skógareldum. Fúff! | 06-08-22 | Jói : Hvernig væri svo að fara að hætta með þessar endalausu myndir af SÓL OG SUMRI. Þú veist ekki hvað þetta fer illa með okkur hérna heima á klakanum;)
Margrét: Hehe, ok! Ertu med einhverjar séróskir? Hvernig myndir viltu sjá? Annars er bara málið að kíkja í heimsókn í sumarið og sólina :oþ | 06-08-14 |
| | 
















|