|
 |
 Í Seskarö á leiðinni heim | Finnland2006-07-12, 18:25 Í síðustu viku vöknuðum við John upp við þann ljóta draum að helgin (sem nú er liðin) yrði sú næstsíðasta í sumar sem við bæði erum í fríi. Við gerðum okkur því grein fyrir því að við yrðum að finna upp á einhverju skemmtilegu að gera. Lengi vorum við að spá í að leigja kajak og róa um skerjagarðinn en þegar verðurspáin var eitthvað hálfóstöðug breyttum við áætlun og héldum til Oulu í Finnlandi. Oulu er svona ca. akkurat hinum megin við "hafið". Keyrslan til landamæranna tekur einvern einn og hálfan tíma en þetta var engu að síður fyrsta ferð Johns til grannlandsins. Við renndum okkur í gegnum tollinn inn í landið með lága áfengisskatta. Fyrsta stopp var alko, finnska "ríkið" (æðislegt nafn!). Eftir að hafa verslað áfengi fyrir lífstíð (svona næstum því) tók við eins og hálfs tíma keyrsla niður til Oulu. Þar tók við okkur þetta líka fína tjaldstæði með sumarbústuðum, húsvögnum, tjöldum og æðislegri strönd. Við skelltum upp nýja Clas Ohlsson tjaldinu okkar, fengum okkur smá göngutúr um svæðið og byrjuðum svo að grilla. Síðar um kvöldið mættu á svæðið tvö á okkar aldri frá Luleå. Stelpa og strákur, vinir! Ekki par... Þau buðu upp á Minttu og drógu okkur svo með sér niður í bæ. Finska næturlífið minnti mikið á það íslenska (miðað við það sænska alla vega) en sökum leiðinlegra afleiðinga finnsks áfengis var dvölin í bænum stutt. Við fengum þó að upplifa finnskt karaokí (sem er greinilega súpervinsælt!). Á sunnudaginn var svo bara málið að baða sig í sólinni og hafinu og halda síðan heim á leið. Svona til að fá að upplifa skerjagarðinn þrátt fyrir að hafa hætt við kajaktúrinn þá komum við í Seskarö sem er lítil eyja í Botnvíkinni. Yndisleg helgi! Næstu helgi er stefnan svo tekin á sumarbústað rétt sunnan við Umeå með bekkjarfélögum Johns. Eilíf gleði!
| | Bjarni: er allt dáið hérna.. mánuður síðan síðustu skrif voru... hvernig ganga flutningar? hvernær eru þeir? kv. Bjarni
Margrét: Nei það var of mikill pressa á mig að skrifa, þannig að ég fór í verkfall :) Við flytjum á föstudag, gengur hægt, tæplega búin að pakka í 1 kassa :oþ | 06-08-08 | Kolla: Jamm vid stefnum a svona ferd..kannski þið skellið ykkur með? Annars tók ég mér sumarfrí í bloggi, því fer að ljúka.
Margrét: Jú við vorum einmitt líka búin að spá í svona ferð þannig að við myndum endilega skella okkur með :o) | 06-07-30 | Kolla: Hljómar eins og virkilega skemmtileg helgi :) Mig langar til Finnlands.
Margrét: Það er nú ekki langt fyrir þig til Finnlands, bara hoppa á einhverja af þessum einstaklega skemmtilegu ferjum :oP Hvar hefur þú annars haldið þig undarfarnar vikur? Þú hvarfst alveg af yfirborði internetsins. | 06-07-26 |
| | 


|