|
 |
 Fjöldi sólartíma síðustu vikuna á nokkrum vel völdum stöðum í Svíþjóð | Sumar og sól2006-07-02, 17:42 Myndin segir allt sem segja þarf! Það er sumar í Luleå. Sólin hefur skinið stanslaust alla vikuna og hitastigið stígur með hverjum deginum. Í dag var 28 stiga hiti svo við skelltum okkur niður á strönd. Það var kannski ekki besta hugmyndin sem ég hef fengið því eftir hádegi á föstudag byrjaði ég skyndilega að fá alls konar útbrot út um allan líkamann. Í dag voru þau hins vegar farin að róast aðeins svo ég hélt mér væri óhætt að sitja léttklædd í sólinni. Mér til mikillar mæðu hef ég nú uppgötvað nokkur ný útbrot innan um þessi gömlu. Útlitið er ekki gott þar sem þetta er farið að minna meira og meira á útbrotin sem John þjáðist af 2004. Nú er bara að vona að varirnar fari ekki að margfaldast líka.
Annars er lífið bara alveg ótrúlega ljúft hér í norðrinu þrátt fyrir vinnubrjálæði og annað. Ég er sem sagt komin með vinnu í Eklidens skola í Nacka í Stokkhólmi. Þar byrja ég 14. ágúst næstkomandi og ætla að reyna að kenna nokkrum 7. bekkingum (eins og 8. bekkur á Íslandi) stærðfræði og náttúrufræði. Ég sit því öll kvöld og les líffræði, eðlisfræði og efnafræði, ótrúlegt stuð :) En eins og það hafi ekki verið nóg að atvinnumiðlunin borgaði fyrir mig farið í atvinnuviðtalið hér fyrir nokkrum vikum heldur eru þau búin að samþykkja að flytja fyrir mig líka. Í staðinn fyrir að dröslast með risa flutningakerru einhverja 1000 kílómetra til Stokkhólms fáum við því flutningafyrirtæki til að gera þetta allt saman fyrir okkur. Mér skilst meira að segja að þeir pakki fyrir okkur ef við biðjum fallega... Og já, allt okkur að kostnaðarlausu!
| | Bjarni @ : Snilld!! Svona á að flytja en ekki að drösslast með þetta allt sjálfur ;).. aðeins meiri sól hjá þér en á Íslandi skylst mér .D
Margrét: Já ég er sko snillingur :) | 06-07-09 | Kolla: Til hamingju með vinnuna! Og vá ekkert smá flott þjónusta hjá þessari atvinnumiðlun.
Margrét: Takk! Já Arbetsförmedlingen rúlar... eða eitthvað :op | 06-07-04 | Ágúst: Hæ Magga. Sólin hefur á sér ýmsar hliðar:-) Gaman að lesa frá þér. Kær kveðja úr landi ísa og kuls.
Margrét: Já og ég sakna þess að lesa frá þér, en gaman að fá að sjá smá lífsmark :o) | 06-07-03 |
| | 

|