| Blogg | Myndaalbúm | Gestabók | Um mig | Linkar |
Blogg
Helgarferð til Rómar
Haustmerki
Álandseyjar
Bílað til Danmerkur
Fjölskylduheimsókn
Júní 2007
Vorið er komið
Árshátíð Íslendingafélagsins
Nýtt ár...
Lífið eftir Möltu
Malta
Heimsókn
Stokkhólmari
Sumarskýrslan
Finnland
Sumar og sól
Alanya
Sumarfrí
Eins konar útskrift
Valborg


Alanya á Tyrklandi
Sumarfrí2006-06-06, 16:17
Sumarið kom án þess að mér tækist almennilega að blogga um það. Að vísu er ekki um neitt sumar að ræða svona veðurfræðilega. Eftir örstutt vor í maí kom enn þá styttra sumar með 25 stiga hita og nú virðist vera komið haust með regni, kulda og blæstri. Ég vona nú samt að þetta sé bara vorið sem er að láta minna á sig og að innan tíðar takist sumrinu að ná yfirtökunum. Í millitíðinni ætlum við John samt að skreppa í alvöru sumar á Alanya Tyrklandi. Þangað fljúgum við á morgun og munum sleikja sólina í eina viku. Tilefnin eru mörg. Einna helst það að mér tókst að fá frí í vinnunni en annars er ég að vinna upp á hvern einasta virka dag þangað til við flytjum til Stokkhólms. Ekki minna mikilvægt er að halda upp á að John hefur nú lokið námstíð sinni hér í Luleå og að ég brilleraði á stöðuprófinu mínu í sænsku. Við nýtum sérhvert tækifæri sem gefst til að gera okkur glaðan dag :) En alla vega... Gleðilegt sumar!

Komment: 
Nafn:    E-mail/url: 
Endurtaka:  =  
Íris :  Gleðilegt sumar! Vona að það hafi verið gaman hjá ykkur í útlandinu :-)
 Margrét: Já það var svo sannarlega æðislegt. Komum heim í morgun eftir næturlangt ferðalag frá Alanya. Reyni að skella inn myndum um leið og ég get! :)
06-06-14