| Blogg | Myndaalbúm | Gestabók | Um mig | Linkar |
Blogg
Helgarferð til Rómar
Haustmerki
Álandseyjar
Bílað til Danmerkur
Fjölskylduheimsókn
Júní 2007
Vorið er komið
Árshátíð Íslendingafélagsins
Nýtt ár...
Lífið eftir Möltu
Malta
Heimsókn
Stokkhólmari
Sumarskýrslan
Finnland
Sumar og sól
Alanya
Sumarfrí
Eins konar útskrift
Valborg


Bekkjarfélagarnir Kicki og John - bíða eftir takk-skírteininu
Eins konar útskrift2006-05-20, 16:24
Í dag fékk John skírteini sem á stóð TAKK! Það er lausn stúdentaráðsins til að fagna námslokum áður en allir hverfa suður á bóginn. Það er nefnilega þannig hérna í Luleå að það síðasta sem nemarnir gera er lokaverkefni sem þeir vinna yfirleitt fyrir einhver fyrirtæki víðs vegar um Svíþjóð. Það hefur því ekki gefið góða raun að halda útskriftarathöfn þegar náminu er formlega lokið því þá eru nemarnir yfirleitt fluttir héðan. Þess vegna er haldin hátíð sem gengur undir nafninu Av4rningen eftir fjögurra ára nám áður en lokaverkefnaskrif hefjast. John fagnar þessum tímamótum í dag. Að vísu er hann að ljúka sínu fimmta ári og fær að launum prófgráðu í tveimur greinum innan verkfræðinnar. Flestar fjölskyldur mættu á svæðið og voru stoltar av litlu útskriftarnemunum sínum en því miður fékk ég ein halda uppi heiðri Johns þar sem restin af fjölskyldunni er í Stokkhólmi í brauðkaupi sem við missum sem sagt af. Í kvöld er svo voða fínn hátíðarkvöldverður og eftirpartý en við ætlum að skella okkur bara tvö á nýtt steikhús hér í bæ, fara svo heim, drekka vín og horfa á Eurovision. Síðan er aldrei að vita nema við skellum okkur í eftirpartýið... En alla vega, til hamingju John!

En annars er bara búið að vera nóg að gera í prófum og vinnu. Á morgun fer ég í síðasta sænskuprófið mitt og þá tekur við enn meiri vinna. Ég fæ þó nokkurra daga frí í júní og því munum við John fagna í Alanya í Tyrklandi. Þetta er yndislegt líf!

Komment: 
Nafn:    E-mail/url: 
Endurtaka:  =  
Kicki @ :  Kollade just Johns sajt och det verkar som ni är påväg till Stockholm snart? Jag kommer bo i Södertälje i höst så vi kanske kan hinna med någon fika nån gång? =)
 Margrét: Du vet ju säkert hur mycket John gillar att fika, så det låter som en riktigt bra idé :op
06-08-01
Kolla:  Grattis John! og til hamingju með manninn þinn Magga :)
 Margrét: Takk takk frá okkur báðum :o)
06-05-28