|
 |
 Beðið eftir vorinu | Valborg2006-05-02, 15:36 Nei ekki konan heldur 1. maí hátíðarhöldin hérna í Svíþjóð. Í annað skipti upplifi ég þessa hátíð en á tveimur mjög ólíkum stöðum fyrir að vera í sama landinu. Fyrir tveimur árum léku vorhlýindin við mig í Malmö og nú get ég sagt að ljúfir vorvindar hafi leikið um okkur hér í Luleå. Það er þó ekki hægt að kvarta yfir veðrinu. Það var orðið nokkuð þurrt og snjórinn að mestu leyti horfinn þótt það megi sjá einn og einn snjóskafl á stangli. Helgin var sem sagt hin allra besta hér í norðri. Hitastigið stígur með hverjum deginum og því var ekkert því til fyrirstöðu að grilla með góðum félögum á sunnudagskvöldið. Í kappi við sólarlagið fluttum við út eldhúsborð og stóla, grilluðum og drukkum fólköl. Þegar líða tók á kvöldið og sólin hafði sest ákváðum við að njóta maíbrennunnar með öllum hinum litlu börnunum og skoða fínu flugeldasýninguna. Ég varð nú ekki fyrir neinum vonbrigðum þótt ég sé Íslendingur, þetta stóðst alveg allar þær væntingar sem ég hafði gert mér. Um ellefuleytið var ég svo þreytt eftir alla útiveruna að ég sofnaði bara fyrir framan sjónvarpið eins og venjulega. Ég vaknaði því enn hraustari í gærmorgun og þar sem ekki var um neina 1.maí kröfugöngu að ræða hjá okkur John þá skelltum við okkur í smá bíltúr. Við keyrðum út í "nálægustu" eyjuna (tæplega eyja sko) og fórum í göngutúr á ísi þakinni ströndinni. Ég ákvað að láta nokkrar myndir fylgja til að vinir og vandamenn á Íslandi geri sér aðeins betur grein fyrir aðstæðunum hér hjá mér. Þótt það sé komið vor og hlýindinn séu ekki af verri endanum þá gerir ísinn sér lítið fyrir og situr sem fastast úti í víkinni. Voða fínt alveg...
| 





|