| Blogg | Myndaalbúm | Gestabók | Um mig | Linkar |
Blogg
Helgarferð til Rómar
Haustmerki
Álandseyjar
Bílað til Danmerkur
Fjölskylduheimsókn
Júní 2007
Vorið er komið
Árshátíð Íslendingafélagsins
Nýtt ár...
Lífið eftir Möltu
Malta
Heimsókn
Stokkhólmari
Sumarskýrslan
Finnland
Sumar og sól
Alanya
Sumarfrí
Eins konar útskrift
Valborg


Kólosseum í jólabúningi
Helgarferð til Rómar2007-12-23, 12:46
Þann 7. - 9. desember bauð John mér í helgarferð til Rómar í tilefni af afmælinu mínu. Við flugum með Ryan Air sem var nú alveg upplifun fyrir sig og gistum á Ripa Hotel, fjögurra stjörnu hóteli í huggulega hverfinu Trastavere. Það tók okkur smá tíma að komast upp á lagið með almenningssamgöngur borgarinnar en eftir það var leiðin greið um þessa ótrúlega sögulegu borg. Við stoppuðum stutt en tókst nú samt að sjá öll helstu stórvirkin, eins og Kólosseum, Sigurboga Konstatínusar, spænsku tröppurnar, Fontana di Trevi, Vatikanið og Péturskirkjuna, Engilsborg og Panþeon. Við eigum þó enn eftir að skoða sextándu kapelluna og fá okkur langan göngutúr um Forum Romanum sem er nú alveg næg ástæða til að skella sér aftur til Rómar við tækifæri. Á þessum stutta tíma tókst okkur á sjá páfanum bregða fyrir af algjörri slysni en þó ekki svo að okkur tækist að festa því á filmu. Ítalski maturinn stóð líka alveg fyrir sína þó svo að ég haldi enn fast í þá skoðun að ítalskur matur eru bestur í Svíþjóð :)

Komment: 
Nafn:    E-mail/url: 
Endurtaka:  =